Tuesday, August 01, 2006

jæja hvað er í gangi

jæja hvað er í gangi

já nú er ekki seinna vænna að fara að drífa sig af stað og mæta á æfingu það hefur frést af nokkrum úr A22 á æfingum í laugardagshöll (frjálsíþróttahöllinni) með Ármenningum frá 17;00 - 20:00 á miðvikudag og fimmtudag ..... koma svo
Gummi

Sunday, July 30, 2006

fríið að verða búið

já núna er sumarfríið að verða búið og allir ættu að fara að koma í hús. einhverjir byrjuðu með Nikolay í júlí en aðrir eru að byrja núna. Vonandi eru allir spenntir að byrja koma hressir til starfa í vetur.

Friday, June 16, 2006

tvöflt heljar

http://www.vimeo.com/moogaloop.swf?clip_id=53596" quality="best" scale="exactfit" width="400" height="300" type="application/x-shockwave-flash">

frekar cool

Tuesday, February 28, 2006

fjórir hlutir

stolið frá drgunna
alltaf gaman að gera svona lista

Fjórar bíómyndir sem ég get/gat horft á aftur og aftur:
1. The Graduate
2. the shawshank redemption
3. trainspotting
4. 12 monkeys

fjórar plötur sem ég get alltaf hlustað á
1. Sonic Youth - daydream nation
2. the cardigans - life
3. belle and sebastian - tigermilk
4. muse - origin of symmetry

Tuesday, February 21, 2006

iðnaðarmenn

Búinn að vera í iðnaðarmannaveseni síðan einhverntímann í haust. Næstum því jafn langan tíma eins og það hefði tekið mig að læra eins og eina iðn eða tvær. Búinn að bíða eftir pípara, múrara, flísara og rafvirkja og verið að reyna að koma þessum mönnum saman því þeir geta að minnsta kosti ekki gert það sjálfir. Kannski er málið að þeir læri ekki bara eina iðn heldur haldi sig bara við eitt herbergi eða verk til dæmis baðiðn eða fokheldisiðn ekki pípun, málun, rafvirkjun og svo framvegis. Það hefði nú alla veganna komið okkur betur og við værum nú líklega bara löngu flutt í engihlíðina ef svo væri. Nú er amk bara að fara aftur á byrjunarreit og klára málið eins fljótt og auðið er...

Wednesday, January 25, 2006

íslensku tónlistarverðlaunin

frekar fyndið fyrirbæri þó ekki jafn fyndið og edduverðlaunin þar sem allir eru tilnefndir sem eru með
svona sósílistaverðlaun ekki gert upp á milli
annars segja allir að þetta sé bara svona uppskeru og árshátið fyrir fólkið
myndu margir horfa á árshátið viðskiptabankanna í sjónvarpinu
mætti tékka áþví

Friday, January 20, 2006

til hamingju með daginn strákar

kynþokkafykkstu karlarnir

var að hlusta á útvarpið nánar tiltekið á rás 2 í dag þegar var verið að velja kynþokkafyllsta karlinn í dag. fannst fyndið hve margir kallar hringdu inn og kusus vini sína sér í lagi trukkabílstjórar á austurlandi topp 5 endaði á þessa leið
1. Garðar THor Cortes
getur hann ekki einu sinni skrifað nafnið sitt eða sungið almennilega fyrir utan hve óperusöngur er lítið kynþokkafullur
2. Þórhallur Gunnarsson
3.HElgi Rafnsson
líklega trukkabílstjóri að austan
4. Þór Ólafsson
annar trukkabílstjóri líklega að vestan þessi
5. Steingrímur Joð Sigússon
aldrei haft miklar skoðanir á þessu vali en finnst þetta mjög fyndið að lenda í veltu og á næsta degi komast á listann kannski að nærföt merkt þvottahúsum ríkisspítalanna hafi áhrif amk var frétt um daginn þar sem sagt var að mikið væri stolið af þessum fötum

spurningin er bara er ég ekki einu sinni eins sexy og steingrímur joð ...................